Alþjóðlegi Bangsadagurinn

Alþjóðlegi bangsadagurinn er afmælisdagur Theodore (Teddy) Roosevelt fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Hann var mikil skotveiðimaður og sagan segir að eitt sinn þegar hann var á veiðum hafi hann vorkennt litlum varnalausum bjarnahúni og sleppt honum. Washington Post birti skopmynd af þessum atviki. Búðareigandi einn í Brooklyn í New York varð svo hrifinn af þessari sögu að hann bjó til leikfangabangsa sem hann kallaði í höfuðið á Teddy eða Teddy Bear. Nú er þessi leikfangabangsi orðin vinsæll leikfélagi barna um allan heim. Nú er Alþjóðlegi bangsadagurinn haldinn hátíðlegur ár hvert á fæðingardegi Theodore Roosevelt.

Í tilefni dagsins meiga öll börn koma á náttfötunum í leikskólann og taka með sér sinn uppáhalds bangsa