Farsældarvika 9. - 13. mars 2026
Í tilefni af farsældarviku höfuðborgarsvæðisins, sem fram fer dagana 9. – 13. mars, viljum við vekja athygli á samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Nánari upplýsingar um farsæld barna má finna hér: https://www.farsaeldbarna.is/
Tengiliðir farsældar í skólanum eru Eva Björk Ómarsdóttir og Ísabella Maria Markan
Innleiðingarteymi farsældar í Kópavogi mun einnig bjóða foreldrum upp á fjarfund um farsældarlögin og innleiðingu þeirra mánudaginn 9. mars kl. 17.30-18. Hlekkur á fræðslufundinn er hér: Fræðsla um farsældarlög 9. mars kl. 17.30
Ef þið viljið koma ábendingum til innleiðingarteymis farsældar í Kópavogi getið þið sent Elísu Guðnadóttur, ráðgjafa farsældar í leikskólum Kópavogs tölvupóst á netfangið elisa.gudnadottir@kopavogur.is.